Elísabeth Lind
Frumsýning, vinna og hlutverk í auglýsingu!! :)Elísabeth Lind Ingólfsdóttir
Hæhæ
Síðast talaði ég um að ég væri komin með vinnu í Kaffitár.. .Ég er hætt hehe.
ÉG var ekki að meika þennan vinnutíma, bara alls ekki og svo í þokkabót fékk ég sama sem ekkert útborgað!
En ég var ekki lengi að finna mér aðra vinnu en fyrsti vinnudagurinn var einmitt í dag - og vá hvað mér líst vel á þetta!! Fólkið er yndislegt, vinnutíminn viðráðanlegur og kaupið fínt

Síðasti mánuður var alveg kolbrjálæðislega busy - vegna vinnu, leikæfinga, námskeiðs hjá Gunnari Ben og DJAMMS
En allt tók þetta fallegan endi síðustu helgi. Frumsýning stuttverkahátíðar Hugleiks - ,,Ó þessi tæri einfaldleiki" var síðasta föstudag, 31.okt.
Hún heppnaðist rosa vel og ég var alsæl með öll mín hlutverk, sem Dísa í Þema, barn 1 í Amma Lída og sem ein af 11 í tónverkunum. Þetta var svooo gaman og svo sat Mæja mín á fremsta bekk og fékk alltaf svona ánægjuhroll þegar hún hló
Svo eftir sýninguna sá ég að Sólveig vinkona mín úr hjúkkunni var þarna líka - surprise - ekkert smá gaman
Eftir frumsýningu var frumsýningarpartý niðrá Eyjarslóð þar sem var góð næting og flott stemming - ég hins vegar gat ekki syaldrað lengi við þar sem ég þurfti náttla að vinna klukkan fjögur um nóttina. Næsta sýning var á Laugardeginum og hún gekk vel en mér fannst leitt að þekkja engann í salnum... Svo var síðasta sýning á Sunnudag, það var fullt á fyrstu og aðra sýningu en á sunnudag þá þurftum við að bæta við 20 stólum og við vorum tekin upp líka
Kristný mín mætti á Sunnudaginn og ég var svo þakklát fyrir að þær vinkonur mínar komu - þar sem að öll fjólskyldan mín - báðar - ákváðu að beila á mér.Á Laugardeginum ákvað ég að kíkja á Hressó eftir sýningu og þá var ég svo heppin að rekast á strákar í Jhonny and the rest og ákvað að hlusta aðeins á þá. Svo skutlaðist ég heim til Kef - í hjúkkubúninginn og niðrá Paddy´s með Mæju, Kristný, Bylgju og Tinnu og djammaði frammað að vinnu.
Á morgun er ég að fara leika í auglýsingu.. Sjónvarpsauglýsingu - ég er svo spennt

Ég er mikið búin að vera á sviði, bæði að leika og syngja en ég hef aldrei leikið fyrir myndavélar og lítið verið í sjónvarpi fyrir utan ædolið forðum daga hahahaha !

... Næstu helgi ætla ég að stinga af heim í sveitina, það er sko kominn tími til að pústa aðeins í náttúrunni og með familíunni. Ég þarf að sjá um fjósið á föstudagskvöld og laugardagsmorgun og það er sko eitthvað sem að hleður batteríin á no tima

Langar þig að kíkja með í helgarferð undir Eyjafjöllin? Let me know

En núna er komið nóg af blaðri... Verð að lúlla eitthvað fyrir þessar tökur svo ég verði ekki ofsameygluð hehe...
Love to all!!
- Elísabeth Lind
Athugasemdir
1
Sólveig Helga Sigfúsdóttir skrifar:
Gaman að heyra hvað allt gengur vel hjá þér og er skemmtilegt elskan:)
08. nóvember 2008 klukkan 23:06
2
Linda Steingrímsdóttir skrifar:
Hæ Lisa. Ertu nokkuð búin að gleyma Ömmu gömlu fyrir vestan. Gúglaði þig og fann þá þennan vef.
Mig langar að heyra meira um einleikinn og sjónvarpsauglýsinguna. Ertu nokkuð hætt í hjúkkunni??
Kv. amma linda.
Mig langar að heyra meira um einleikinn og sjónvarpsauglýsinguna. Ertu nokkuð hætt í hjúkkunni??
Kv. amma linda.
16. nóvember 2008 klukkan 00:00

